{"id":44338,"date":"2025-05-23T00:51:13","date_gmt":"2025-05-23T00:51:13","guid":{"rendered":"https:\/\/fram.is\/?p=44338"},"modified":"2025-05-23T00:53:15","modified_gmt":"2025-05-23T00:53:15","slug":"tvofaldir","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/nytt.fram.is\/is\/2025\/05\/23\/tvofaldir\/","title":{"rendered":"Tv\u00f6faldir"},"content":{"rendered":"<div data-elementor-type=\"wp-post\" data-elementor-id=\"44338\" class=\"elementor elementor-44338\" data-elementor-post-type=\"post\">\n\t\t\t\t<section class=\"elementor-section elementor-top-section elementor-element elementor-element-5aaa959b elementor-section-boxed elementor-section-height-default elementor-section-height-default\" data-id=\"5aaa959b\" data-element_type=\"section\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-container elementor-column-gap-default\">\n\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-column elementor-col-100 elementor-top-column elementor-element elementor-element-648f2bf4\" data-id=\"648f2bf4\" data-element_type=\"column\">\n\t\t\t<div class=\"elementor-widget-wrap elementor-element-populated\">\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"elementor-element elementor-element-7d8436fc elementor-widget elementor-widget-text-editor\" data-id=\"7d8436fc\" data-element_type=\"widget\" data-widget_type=\"text-editor.default\">\n\t\t\t\t<div class=\"elementor-widget-container\"><p>Fyrsta byggingarregluger\u00f0in var sett \u00ed Reykjav\u00edk \u00e1ri\u00f0 1903. H\u00fan f\u00f3l \u00ed s\u00e9r mikilv\u00e6g tilm\u00e6li til framkv\u00e6mdara\u00f0ila um fr\u00e1gang h\u00fasa og annarra mannvirkja. \u00de\u00f6kk s\u00e9 \u00f6flugum byggingarst\u00f6\u00f0lum hefur almenningur \u00e1 \u00cdslandi m\u00e1tt treysta \u00fev\u00ed \u00ed \u00f6llum meginatri\u00f0um a\u00f0 byggingar hrynji ekki til grunna fyrirvaralaust. \u00dea\u00f0 var mikil huggun \u00e1 \u00e1horfendap\u00f6llunum \u00ed Valsh\u00f6llinni \u00ed kv\u00f6ld \u00feegar m\u00f6rghundru\u00f0 Framarar hoppu\u00f0u upp og ni\u00f0ur \u00ed s\u00edfellu svo g\u00f3lffjalirnar d\u00fau\u00f0u. \u00dea\u00f0 er sterkt \u00ed \u00feessu.<br \/><img fetchpriority=\"high\" decoding=\"async\" class=\"alignnone size-large wp-image-44341\" src=\"https:\/\/nytt.fram.is\/wp-content\/uploads\/2025\/05\/JGK_-Ahorfendur--1024x683.jpg\" alt=\"\" width=\"800\" height=\"534\" srcset=\"https:\/\/nytt.fram.is\/wp-content\/uploads\/2025\/05\/JGK_-Ahorfendur--1024x683.jpg 1024w, https:\/\/nytt.fram.is\/wp-content\/uploads\/2025\/05\/JGK_-Ahorfendur--300x200.jpg 300w, https:\/\/nytt.fram.is\/wp-content\/uploads\/2025\/05\/JGK_-Ahorfendur--768x512.jpg 768w, https:\/\/nytt.fram.is\/wp-content\/uploads\/2025\/05\/JGK_-Ahorfendur--1536x1024.jpg 1536w, https:\/\/nytt.fram.is\/wp-content\/uploads\/2025\/05\/JGK_-Ahorfendur--18x12.jpg 18w, https:\/\/nytt.fram.is\/wp-content\/uploads\/2025\/05\/JGK_-Ahorfendur--800x533.jpg 800w, https:\/\/nytt.fram.is\/wp-content\/uploads\/2025\/05\/JGK_-Ahorfendur-.jpg 1800w\" sizes=\"(max-width: 800px) 100vw, 800px\" \/><\/p><p>Fr\u00e9ttaritari Frams\u00ed\u00f0unnar hefur \u00e1\u00f0ur afhj\u00fapa\u00f0 hi\u00f0 skringilega samband sitt vi\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0ar\u00ed\u00fer\u00f3ttina. Hann er \u00ed grunninn f\u00f3tboltakall en horfir samt \u00e1 n\u00e6stum helming handboltaleikja karla- og kvennali\u00f0a Fram yfir veturinn og n\u00e6r alla \u00farslitakeppnisleiki \u2013 en yfirleitt \u00fe\u00f3 \u00ed sj\u00f3nvarpi e\u00f0a \u00e1 netstraumum. A\u00f0 m\u00e6ta \u00ed eigin pers\u00f3nu er f\u00e1g\u00e6tari vi\u00f0bur\u00f0ur og fr\u00e9ttaritarinn finnur alltaf um lei\u00f0 til sm\u00e6\u00f0ar sinnar og f\u00e1kunn\u00e1ttu.<\/p><p>Eins og fram hefur komi\u00f0 b\u00fdr fr\u00e9ttaritarinn \u00ed mi\u00f0ju Hl\u00ed\u00f0ahverfi \u2013 svo n\u00e6rri Valsheimilinu a\u00f0 \u00ed hvert sinn sem \u00ed\u00fer\u00f3ttah\u00fasi\u00f0 er leigt \u00fat fyrir \u00e1rsh\u00e1t\u00ed\u00f0ir e\u00f0a t\u00f3nleika getur hann tali\u00f0 bassataktinn \u00ed svefnherbergi s\u00ednu. \u00dea\u00f0 var \u00fev\u00ed bor\u00f0leggjandi a\u00f0 stefna skjaldsveininum heim \u00ed eldh\u00faspart\u00fd \u00e1\u00f0ur en r\u00f6lt v\u00e6ri \u00e1 leikinn. Rabbi og yngri sonurinn voru b\u00fanir a\u00f0 sta\u00f0festa komu s\u00edna vi\u00f0 \u00feri\u00f0ja mann. \u00deeir lofu\u00f0u a\u00f0 taka fr\u00e1 s\u00e6ti \u00ed st\u00fakunni \u00e1 me\u00f0an fr\u00e9ttaritari og skjaldsveinn \u00e1kv\u00e1\u00f0u a\u00f0 kynna s\u00e9r grei\u00f0as\u00f6lu heimamanna. \u00dear var bo\u00f0i\u00f0 upp \u00e1 l\u00e6t-bj\u00f3r af d\u00e6lu \u00fear til h\u00fan gaf upp \u00f6ndina og hamborgara sem voru sannast sagna ekkert s\u00e9rstaklega g\u00f3\u00f0ir. M\u00f6gulega skekkir \u00fea\u00f0 \u00fe\u00f3 mati\u00f0 a\u00f0 geta reglulega gengi\u00f0 a\u00f0 Michelinstj\u00f6rnuborgurum \u00ed \u00dalfars\u00e1rdalnum. \u00cd \u00f6lr\u00f6\u00f0inni m\u00e1tti sj\u00e1 \u00e1sts\u00e6la listamenn \u00far r\u00f6\u00f0um Framara: Einar K\u00e1rason og Fri\u00f0rik \u00de\u00f3r Fri\u00f0riksson. Da\u00f0i \u00far \u00dalfunum var s\u00f6mulei\u00f0is peppa\u00f0ur fyrir leiknum. Hann vi\u00f0urkenndi a\u00f0 kunna ekkert \u00ed n\u00fat\u00edmahandboltareglum \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 hafa \u00e6ft harpixgl\u00edmu \u00f6ll s\u00edn unglings\u00e1r.<\/p><p>Svo lei\u00f0 a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 leikurinn h\u00e6fist og f\u00e9lagarnir leitu\u00f0u uppi Rabba og f\u00f6runeyti. \u00cd lj\u00f3s kom a\u00f0 \u00feeir h\u00f6f\u00f0u fundi\u00f0 s\u00e9r sta\u00f0 beint fyrir aftan marki\u00f0. Fr\u00e9ttaritarinn hefur aldrei \u00e1\u00f0ur \u00e1 \u00e6vinni horft \u00e1 handboltaleik beint fyrir aftan marki\u00f0. Stemningin var m\u00f6gnu\u00f0 og vekur upp \u00e1leitnar spurningar fyrir HS\u00cd. S\u00fa mest kn\u00fdjandi hl\u00fdtur a\u00f0 vera: getur \u00fea\u00f0 virkilega talist e\u00f0lilegt \u00ed \u00farslitaeinv\u00edgi um \u00cdslandsmeistaratitil a\u00f0 anna\u00f0 li\u00f0i\u00f0 \u2013 Framarar \u2013 f\u00e1i a\u00f0 spila alla \u00ferj\u00e1 leikina \u00e1 heimavelli? J\u00faj\u00fa, n\u00fa kynnu einhverjir a\u00f0 benda \u00e1 \u00fe\u00e1 sta\u00f0reynd a\u00f0 tveir af \u00feessum \u00feremur leikjum hafi fari\u00f0 fram a\u00f0 Hl\u00ed\u00f0arenda \u2013 en \u00fea\u00f0 breytir ekki \u00feeirri sta\u00f0reynd a\u00f0 leikurinn \u00ed kv\u00f6ld, l\u00edkt og s\u00e1 fyrsti \u00ed einv\u00edginu, var hreinr\u00e6kta\u00f0ur heimaleikur me\u00f0 mikinn meirihluta Framara \u00e1 p\u00f6llunum og megni\u00f0 af umhverfishlj\u00f3\u00f0unum \u00far 113-b\u00f6rkum.<\/p><p>Leikur bikarmeistara \u00e1rsins 2025 og meintra bikarmeistara \u00e1rsins 1998 h\u00f3fst og \u00fea\u00f0 var \u00f6skra\u00f0 og sungi\u00f0 fr\u00e1 fyrstu m\u00edn\u00fatu. Fr\u00e9ttaritarinn hefur aldrei \u00e1\u00f0ur sta\u00f0i\u00f0 \u00ed 60 m\u00edn\u00fatur \u00e1 handboltaleik og hr\u00f3ar og klappa\u00f0 stanslaust. \u00dea\u00f0 m\u00e6tti venjast \u00feessu.<\/p><p>\u00cd anda sannra \u00farslitavi\u00f0ureigna var leikurinn \u00ed j\u00e1rnum og fr\u00e1 fyrstu m\u00edn\u00fatu til \u00feeirrar s\u00ed\u00f0ustu muna\u00f0i mest tveimur m\u00f6rkum. Framarar n\u00e1nast allan t\u00edmann a\u00f0eins \u00e1 undan \u2013 oftast me\u00f0 eins marks forystu en heimamenn komust \u00ed f\u00e1eins skipti markinu yfir. Varnarleikur Vals gekk n\u00e6r alfari\u00f0 \u00fat \u00e1 a\u00f0 halda ni\u00f0ri Reyni \u00de\u00f3r sem hefur veri\u00f0 st\u00f3rkostlegur \u00ed einv\u00edginu. St\u00f3rleikur \u00cd\u00fer\u00f3ttamanns Fram \u00e1rsins 2008 \u00ed Valsmarkinu h\u00e9lt heimam\u00f6nnum inni \u00ed leiknum og kom \u00ed veg fyrir au\u00f0veldan sigur okkar manna.<\/p><p>Fram n\u00e1\u00f0i tveggja marka forystu undir bl\u00e1lok fyrri h\u00e1lfleiks og stemningin var \u00fev\u00ed g\u00f3\u00f0 \u00ed bl\u00e1a li\u00f0inu \u00feegar gengi\u00f0 var til veislusala \u00ed hl\u00e9i. Bi\u00f0r\u00f6\u00f0in var k\u00edl\u00f3metra l\u00f6ng en skjaldsveinninn gat v\u00e9la\u00f0 gamlan unglingavinnuverkstj\u00f3ra fr\u00e9ttaritarans og f\u00f3tboltagarp \u00far KR til a\u00f0 kaupa bauka til a\u00f0 brynna \u00feyrstum. Einu sj\u00e1anlegu sveitarstj\u00f3rnarp\u00f3lit\u00edkusarnir \u00ed h\u00fasinu voru frams\u00f3knard\u00faettinn Magnea Gn\u00e1 og Einar fyrrum borgarstj\u00f3ri. \u00deau voru samm\u00e1la fulltr\u00faa meirihlutans um a\u00f0 stemningin og stu\u00f0i\u00f0 v\u00e6ri allt Frammegin.<\/p><p>Seinni h\u00e1lfleikur byrja\u00f0i og allt var vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sama. Valur jafna\u00f0i metin nokkrum sinnum, en Framarar skoru\u00f0u yfirleitt 1-2 m\u00f6rk um h\u00e6l. Heimamenn komust \u00ed 20:19 og afut 21:20 \u00feegar fimmt\u00e1n m\u00edn\u00fatur voru eftir \u2013 en lengra komust \u00feeir ekki. Eftir \u00fea\u00f0 var sta\u00f0an \u00fdmist j\u00f6fn e\u00f0a Fram me\u00f0 1-2 marka forystu. Valur jafna\u00f0i metin \u00feegar h\u00e1lf m\u00edn\u00fata var eftir en Framarar f\u00f3ru upp \u00ed langa s\u00f3kn og \u00deorsteinn Gauti skora\u00f0i 27:28 \u00feegar t\u00edminn var n\u00e1nast runninn \u00fat. Framarar \u00e1 p\u00f6llunum (sem merkilegt nokk st\u00f3\u00f0u af s\u00e9r brussuganginn) f\u00f6gnu\u00f0u tryllingslega \u2013 \u00ed lj\u00f3s kom a\u00f0 Vals\u00fej\u00e1lfarinn haf\u00f0i n\u00e1\u00f0 a\u00f0 taka leikhl\u00e9 svo fagna\u00f0arl\u00e1tum var t\u00edmabundi\u00f0 slegi\u00f0 \u00e1 frest en \u00feegar leikur h\u00f3fst aftur voru bara tv\u00e6r sek\u00fandur \u00e1 klukkunni. \u00dea\u00f0 dug\u00f0i rau\u00f0kl\u00e6ddum engan veginn og sigurinn var okkar. \u00d3, hva\u00f0 vi\u00f0 sungum og d\u00f6nsu\u00f0um.<\/p><p>\u00deegar fr\u00e9ttaritari Frams\u00ed\u00f0unnar skrifa\u00f0i hundra\u00f0 \u00e1ra afm\u00e6liss\u00f6gu Fram valdi hann mynd af Einari J\u00f3nssyni sem frekar \u00e1lappalegum og b\u00f3lugr\u00f6fum unglingi. \u00dea\u00f0 var ekki gert af illum hug, heldur til \u00feess a\u00f0 koma inn \u00ed b\u00f3kina myndum \u00far ungmennastarfi handboltadeildar Fram. Fr\u00e9ttaritarinn hefur samt alltaf haft sm\u00e1 m\u00f3ral yfir \u00feessu. Einar J\u00f3nsson hefur reynst einn \u00f6flugasti handbolta\u00fej\u00e1lfari sinnar kynsl\u00f3\u00f0ar. Hann hefur n\u00fa tvisvar gert karlali\u00f0 Fram a\u00f0 \u00cdslandsmeisturum \u00ed handbolta me\u00f0 t\u00f3lf \u00e1ra millibili. B\u00e1\u00f0ir titlarnir a\u00f0 einhverju leyti \u00f3v\u00e6ntir en \u00ed b\u00e1\u00f0um tilvikum unnir me\u00f0 samheldnum h\u00f3pi, sta\u00f0r\u00e1\u00f0num \u00ed a\u00f0 sl\u00e1 vi\u00f0 sigurstranglegri andst\u00e6\u00f0ingum me\u00f0 stj\u00f3rstj\u00f6rnur innanbor\u00f0s. \u00dea\u00f0 er eitthva\u00f0 fallegt vi\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1 unglingasveitina \u00far Grafarholti me\u00f0 R\u00fanar K\u00e1ra og \u00deorstein Gauta sem fulltr\u00faa ellinnar og v\u00edsd\u00f3msins koma \u00f6llum sp\u00e1m\u00f6nnum \u00e1 \u00f3vart. <br \/>Fram er tv\u00f6faldur meistari og fer \u00ed gegnum \u00farslitakeppnina me\u00f0 a\u00f0eins einum tapleik. \u00dea\u00f0 er fullkomlega sturla\u00f0! <br \/><img decoding=\"async\" class=\"alignnone size-large wp-image-44342\" src=\"https:\/\/nytt.fram.is\/wp-content\/uploads\/2025\/05\/JGK_maggi-med-bikarinn-1024x683.jpg\" alt=\"\" width=\"800\" height=\"534\" srcset=\"https:\/\/nytt.fram.is\/wp-content\/uploads\/2025\/05\/JGK_maggi-med-bikarinn-1024x683.jpg 1024w, https:\/\/nytt.fram.is\/wp-content\/uploads\/2025\/05\/JGK_maggi-med-bikarinn-300x200.jpg 300w, https:\/\/nytt.fram.is\/wp-content\/uploads\/2025\/05\/JGK_maggi-med-bikarinn-768x512.jpg 768w, https:\/\/nytt.fram.is\/wp-content\/uploads\/2025\/05\/JGK_maggi-med-bikarinn-1536x1024.jpg 1536w, https:\/\/nytt.fram.is\/wp-content\/uploads\/2025\/05\/JGK_maggi-med-bikarinn-18x12.jpg 18w, https:\/\/nytt.fram.is\/wp-content\/uploads\/2025\/05\/JGK_maggi-med-bikarinn-800x533.jpg 800w, https:\/\/nytt.fram.is\/wp-content\/uploads\/2025\/05\/JGK_maggi-med-bikarinn.jpg 1800w\" sizes=\"(max-width: 800px) 100vw, 800px\" \/><br \/>Til hamingju vi\u00f0!<\/p><p>Stef\u00e1n P\u00e1lsson<\/p><\/div>\n\t\t\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t<\/div>\n\t\t<\/section>\t\t<\/div>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Fyrsta byggingarregluger\u00f0in var sett \u00ed Reykjav\u00edk \u00e1ri\u00f0 1903. H\u00fan f\u00f3l \u00ed s\u00e9r mikilv\u00e6g tilm\u00e6li til framkv\u00e6mdara\u00f0ila um fr\u00e1gang h\u00fasa og annarra mannvirkja. \u00de\u00f6kk s\u00e9 \u00f6flugum byggingarst\u00f6\u00f0lum hefur almenningur \u00e1 \u00cdslandi [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":5,"featured_media":44339,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"footnotes":""},"categories":[6,19],"tags":[],"class_list":["post-44338","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-handbolti","category-mfl-karla"],"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/nytt.fram.is\/wp-content\/uploads\/2025\/05\/JGK_Islandsmeistarar-2025.jpg","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/nytt.fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/44338","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/nytt.fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/nytt.fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/nytt.fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/5"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/nytt.fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=44338"}],"version-history":[{"count":4,"href":"https:\/\/nytt.fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/44338\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":44345,"href":"https:\/\/nytt.fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/44338\/revisions\/44345"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/nytt.fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/44339"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/nytt.fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=44338"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/nytt.fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=44338"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/nytt.fram.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=44338"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}